
Premium myndlykill
Sjónvarp og streymi á einum stað. Hljóðhönnun frá Bang & Olufsen, upplifun í Dolby.

Uppfærðu sjónvarps- og streymisupplifun þína
Premium myndlykill Símans færir þér bestu mögulegu upplifunina. Myndlykillinn kemur með innbyggðum hágæða hátalara frá Bang & Olufsen og Bluetooth fjarstýringu. Tryggðu þér hámarks gæði og þægindi meðan þú nýtur þess að horfa á Sjónvarp Símans.

Ótrúlega nákvæmt hljóð
Frá árinu 1925 hafa Bang & Olufsen verið leiðandi í hljómgæðum og nú færa þau þá aldargömlu reynslu beint inn í stofuna hjá þér. Hljóðverkfræðingar þeirra hafa hannað og fínstillt hljóðið í myndlyklinum til að skila tæru og kraftmiklu hljóði sem veitir einstaka hljóð upplifun.

Premium myndlykillinn sameinar öflugt efni, fyrsta flokks hljóð og nýjustu tækni í einni heildstæðri lausn.


Kraftmikið hljóð í tveimur hátölurum
Bættu hljóðupplifun þína með tveimur bakhátölurum. Hátalararnir veita kraftmikinn og skýran hljóm sem fyllir rýmið. Veggfestingar fylgja með hátölurunum og eru einfaldar í uppsetningu. Bættu við þig pari af bakhátölurum fyrir 1.000 kr. / mán.

360° hljóðupplifun
Með Premium myndlyklinum og tveimur bakhátölurum uppfærir þú hljóðupplifun á næsta stig. Innbyggði hátalarinn í myndlyklinum skilar áhrifamiklum hljóm og með hátalara parinu færðu 360° hljóm sem umlykur þig.

Framúrskarandi afþreying
Sjáðu heilan heim af afþreyingu í skýrari og skarpari myndum. Ef uppáhaldsefnið þitt er framleitt í 4K, færðu topp myndgæði með Premium myndlyklinum. Hlaðborð af kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, barnaefni og íþróttaefni. Haltu utan um uppáhalds efnið þitt á einum stað.
Með nýja Premium-myndlykli Símans, sem þróaður er í samstarfi við Bang & Olufsen, erum við að færa heimabíóupplifun með Dolby Atmos beint inn í stofu landsmanna.
Myndlykillinn er hannaður til að skila framúrskarandi hljóð- og myndgæðum í einu og sama tækinu og setur þannig ný viðmið í upplifun á sjónvarpsefni á Íslandi.
Sjónvarpsupplifun er ekki bara mynd, hún er líka hljóð. Vissulega eru myndgæðin í sjónvörpum orðin frábær en hljóðið fylgir því sjaldnast eftir. Við vildum brúa þetta bil. Bang & Olufsen er algjör frumkvöðull í hljóðtækni og þetta samstarf gerir okkur kleift að skila heimabíóupplifun beint inn í stofu í einu og sama tækinu.
Það er algengur misskilningur. Tölurnar okkar tala sínu máli; það eru um 75 þúsund myndlyklar í virkri notkun á um 60 þúsund heimilum. Öppin eru frábær viðbót en í stofunni heima kýs fólk þann hraða, stöðugleika og einfaldleika sem myndlykillinn veitir. Nú erum við að taka þessa upplifun upp á næsta stig.
Við vildum hanna tæki sem fólk hefur raunverulegt gagn af í stofunni. Þú getur tengst myndlyklinum og spilað þína eigin tónlist í gegnum Bang & Olufsen-hátalarana, þótt slökkt sé á sjónvarpsskjánum sjálfum. Hann leysir því af hólmi hefðbundin hljómtæki í stofunni.
Lykillinn er hannaður til að nýta þá tengingu sem heimilið hefur sem best og skila alltaf bestu mögulegu gæðum. Ljósleiðari er besta leiðin til að tryggja stöðugleika, sérstaklega þegar horft er á efni í 4K upplausn, en myndlykillinn vinnur vel með öllum hefðbundnum, stöðugum nettengingum og tryggir að hljóð og mynd njóti sín til fulls.
Einfaldast er að lýsa því sem umvefjandi þrívíddarhljóði (e. spatial audio). Í hefðbundnu sjónvarpi kemur hljóðið bara beint að þér framan úr skjánum, en Dolby Atmos-tæknin vinnur þannig að hljóðið fær raunverulegt rými, dýpt og kraft. Þannig verður upplifunin miklu eðlilegri og lifandi, rétt eins og þú sért staddur í miðjum atburðinum, hvort sem þú ert að horfa á stórmynd, spennandi sjónvarpsþátt eða íþróttaviðburð.