Öll samskiptin ykkar á einum stað
Þú sameinar símtöl, skiptiborð og samskipti fyrirtækisins í einni sveigjanlegri lausn. Svaraðu símtölum hvar sem þú ert og bættu við virkni eftir þörfum fyrirtækisins.


Ekki gleyma mikilvægu símtali
Snjallritarinn umbreytir símtölum í texta, dregur saman helstu atriði og birtir aðgerðapunkta. Þannig getur þú einbeitt þér að samtalinu, haldið betur utan um það sem skiptir máli og nálgast upplýsingarnar þegar þú þarft á þeim að halda.

Notendavænt viðmót á íslensku
Öflugt og notendavænt forrit fyrir bæði Windows og Mac þar sem þú getur sinnt öllum helstu símasamskiptum fyrirtækisins á einum stað. Hringdu og svaraðu símtölum, skoðaðu símtalasögu, leitaðu að tengiliðum og fylgstu með viðverustöðu samstarfsfólks, allt í þægilegu viðmóti á íslensku. Lausnin er einnig aðgengileg í vafra og snjallsíma, þannig að þú getur auðveldlega skipt á milli tækja eftir því sem hentar.
Sæktu appið
Notendavænt viðmót á íslensku á því tæki sem þú kýst að nota. Sama upplifun og virkni hvort sem unnið er í tölvuforriti fyrir Windows og Mac, beint í vafra eða í snjallsíma (iOS og Android).
Opna í vafra

Símkerfið í vasanum
Með Samskipta appinu er símkerfi fyrirtækisins alltaf með þér, án þess að þú þurfir hefðbundinn borðsíma. Veldu hvaða númer birtist þegar þú hringir, færðu símtöl auðveldlega á samstarfsfólk eða í biðraðir. Þú getur einnig fylgst með viðveru samstarfsfólks og rauntíma tölfræði biðraða, hvar sem þú ert.

Tenging við önnur kerfi
Tengdu Samskiptalausnina við þau kerfi sem fyrirtækið notar nú þegar, svo sem Microsoft Teams, CRM og önnur sambærileg kerfi.

Þjónusta og afköst í rauntíma
Sjáðu stöðuna á biðröðum, biðtíma, svörun og þjónustustigi í rauntíma. Þannig getur þú brugðist fyrr við og tryggt betri þjónustu.
Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Samskiptalausn Símans, virkni hennar og notkunarmöguleika fyrir fyrirtæki.
Lesa meiraSamskiptalausn Símans er símkerfi í skýinu fyrir fyrirtæki. Lausnin sameinar símtöl, skiptiborð og samskipti starfsfólks í einu kerfi sem hægt er að nota í tölvu, farsíma og borðsíma.



