Airties 7200
Hvað fylgir með í kassanum?
- Myndlykillinn
- Straumbreytir
- Netsnúra
- HDMI snúra
- Leiðarvísir
Hvernig tengi ég myndlykilinn?
- Tengdu netsnúru úr myndlyklinum og yfir í gultengi númer 3 eða 4 á beininum.
- Tengdu HDMI snúru milli myndlykils og sjónvarpsins.
- Tengdu straumbreytinn við myndlykilinn og settu í samband við rafmagn.
- Kveiktu á sjónvarpinu og stilltu á rétta HDMI rás. Á flestum sjónvörpum stendur við HDMI tengið þar sem snúran er tengd, númer hvað HDMI rásin er. Á flestum sjónvarpsfjarstýringum er skipt milli HDMI rása með því að ýta á takka merktur Source eða Input og nota örvatakka á fjarstýringunni til að velja á milli HDMI rása.
Dæmi um Source eða Input takka

Myndlykill kveikir á sér sjálfur og upp kemur skjár sem stendur á „Bíðið augnablik“. Eftir skamma stund kemur upp viðmót Sjónvarp Símans. Myndlykillinn styður Ultra háskerpu

Myndlykillinn er með RCA-tengi líka, sem eru ekki sýnd á myndinni
Hvernig tengi ég myndlykil ef beinir er á öðrum stað í húsinu?
Hægt er að kaupa svokallaðar Videobrýr sem senda netmerkið þráðlaust á milli sín. Fylgja þarf leiðbeiningum sem fylgja með þeim tækum til að tengja í gegnum þau.