Hvað er VOIP sími?

VOIP sími nýtir internetið. Þegar símtæki er flutt af hefðbundinni símtengingu (POTS) yfir á símtengingu yfir internet (VOIP) er verið að nota aðra tækni til þess að eiga símtöl. Það er þess vegna sem þú tengir síma í beinir (router) í stað þess að stinga í hefðbundið símatengi. Þú ættir ekki að verða var við neinn mun á gæðum þjónustu og þessi tækni snýr fyrst og fremst að því að símtalið er flutt yfir internet tengingu í stað hefðbundinnar línutengingar.

Hérna getur þú skoðað myndband af uppsetningu á VOIP síma.

Skýringarmynd1Skýringarmynd2