Orðskýringar fyrir reikninga

Orðskýringar fyrir reikninga

Á reikningi frá Simanum koma fram upplýsingar um gjöld og greiðslufresti. Einnig má sjá efst á reikningi viðskiptareikningsnúmer hjá Símanum.

Útgáfudagur

Reikningstímabil miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur reikninga í lok mánaðar.

Gjalddagi

Gjalddagi kröfu er 20. hvers mánaðar.

Eindagi

Eindagi krafna hjá fyrirtækjum er 30. hvers mánaðar.

Eindagi krafna hjá einstaklingum er 2. dagur hvers mánaðar. Eindagi er síðasti greiðsludagur áður en hún ber dráttarvexti.

Dráttarvextir

Dráttarvextir reiknast ef krafa er greidd eftir eindaga og reiknast frá gjalddaga.

Útskriftargjald –  athugið! hættir 31. maí 2022

Útskriftargjald er innheimt fyrir hvern viðskiptareikning. Útskriftargjald er vegna kostnaðar við kröfustofnun og greiðslu auk prentunar og póstsendingar. Einstaklingar skráðir í netreikning greiða færslugjald í stað útskriftargjalds.

Síminn hefur markvisst fækkað útprentuðum reikningum undanfarin ár, nú er komið að lokaskrefinu í þeirri vegferð og hætta útprentun. Slík aðgerð er umhverfinu til heilla og í samræmi við sjálfbærnistefnu Símans. Frá 31. maí 2022 hættir Síminn útprentun reikninga og verða þeir eingöngu rafrænir.

Viðskiptavinir sem fá reikninga senda útprentaða í bréfpósti greiða 395 kr. fyrir hvern heimsendan reikning. Með því að nýta sér rafrænar lausnir og greiðsluleiðir geta viðskiptavinir sparað kostnað. Hér má sjá dæmi um kostnað hjá viðskiptavin með einn viðskiptareikning hjá Símanum.

Rafrænn reikningur = Netreikningur

Rafrænir reikningar og netreikningur er það sama. Stofnuð er krafa og viðskiptavinir geta nálgast afrit af rafrænum reikningi í heimabanka, þjónustuvef, appi Símans eða í sjálfvirkum tölvupóstsendingum.

Fyrirtækjum býðst jafnframt að nýta þjónustu skeytamiðlara.

Á þjónustuvef einstaklinga og fyrirtækja hjá Símanum er hægt skrá inn netfang og fá reikninga senda í tölvupósti í hverjum mánuði.

Kostnaður við rafræna reikninga

Viðskiptavinir skráðir í netreikning greiða færslugjald kr. 160 fyrir hvern viðskiptareikning. Færslugjald er vegna kostnaðar við kröfustofnun í banka og greiðslu kröfu.

Hverjar eru greiðsluleiðir rafrænna reikninga ?

Í byrjun hvers mánaðar birtist krafa í heimabanka og ber færslugjald. Hægt er að greiða kröfu í heimabanka en í boði eru fleiri greiðsluleiðir.

Boðgreiðsla

Til að skrá reikninga í boðgreiðslu ferð þú í Síminn appið undir Aðgerðir -> Reikningar og skráir þar kortaupplýsingar. Skuldfært er mánaðarlega af kortinu. Kostnaður við boðgreiðslu er 60 kr. fyrir hvern reikning. Ef ekki tekst að skuldfæra kortið þá stofnast krafa í heimabanka með færslugjald uppá 160 kr.

Beingreiðsla

Hægt er að skrá reikninga í beingreiðslur og skuldfæra þá mánaðarlega af bankareikningi í gegnum viðskiptabanka.Viðskiptavinir verða að skrá sig í beingreiðslu hjá sínum viðskiptabanka. Á reikningi kemur fram viðskiptareikningur hjá Símanum og þarf bankinn þær upplýsingar til að setja reikninga í beingreiðslur. Kröfur í beingreiðslu bera færslugjald.

Viðskiptavinur skráður í boðgreiðslu greiðir 60 kr. fyrir hvern viðskiptareikning en þeir sem skráðir eru í beingreiðslur eða hefðbundna kröfustofnun greiða 160 kr. fyrir hverja kröfu.

Kostnaður við einn viðskiptareikning

  • Útskriftargjald, 395 kr./mán. Árlegur kostnaður 4.740 kr.
  • Netreikningur, 160 kr./mán. Árlegur kostnaður 1.920 kr.
  • Boðgreiðsla, 60 kr./mán. Árlegur kostnaður 720 kr.
Innheimtukostnaður

Ef reikningar eru greiddir eftir eindaga leggst kostnaður á kröfu. Viðskiptavinir geta haft samband við Símann og óskað eftir greiðslusamkomulagi. Sjá nánar hér fyrir neðan um kostnað sem fellur til vegna ógreiddra reikninga.

Innheimtuviðvörun

Lögbundin innheimtuviðvörun er send viðskiptavinum vegna ógreiddra krafna 2. dögum eftir eindaga. Samhliða leggst á gjald samkvæmt verðskrá.

Innheimtuferli

Innheimtuferlar Símans eru samsettir af mismunandi aðgerðum þar með talið milliinnheimtu. Kostnaður við milliinnheimtu er breytilegur með hliðsjón af höfuðstól kröfu í samræmi við reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. nr. 133/2010.  Sjá nánar innheimtuferli.

Samkomulagsgjald

Hægt er að óska eftir greiðsludreifingu vanskilakrafna en þá bætist samkomulagsgjald við greiðslu fyrstu kröfu.

Opnunargjald

Gjaldfært er fyrir enduropnun þjónustu sem hefur verið lokað vegna vanskila.

Skýringarmynd1Skýringarmynd2