3G lokar um land allt
01. apríl 2026
Þann 8. apríl lokar 3G á höfuðborgarsvæðinu. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí. Mikilvægt er að eigendur tækja sem eingöngu styðja 3G tækni endurnýi þau strax til að missa ekki samband. Hm

Síminn vekur athygli á að lokun 3G á höfuðborgarsvæðinu hefst 8. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí. Mikilvægt er að eigendur tækja sem eingöngu styðja 3G tækni endurnýi þau strax til að missa ekki samband.
Nánari upplýsingar um lokanir má finna hér.
Mikilvægt öryggisatriði
Hægt er að hringja í símsvara 1280 og athuga hvort símtækið þitt geti áfram hringt neyðarsímtöl eftir að slökkt hefur verið á 3G.
Ákveðin símtæki munu því ekki geta hringt neyðarsímtöl (í 112) þegar slökkt verður á 3G. Það er því brýnt öryggisatriði að eigendur þeirra tækja bregðist við og uppfæri eða skipti út símtæki sínu.
Hvað þarf ég að gera?
Þú þarft að vera viss um að tækið þitt styðji VoLTE fyrir símtöl og tengist farsímakerfi Símans yfir 4G og/eða 5G. Til að athuga hvort tækið styðji VoLTE er hægt að hringja úr því í síma 550 7880. Einnig má finna nánari upplýsingar á siminn.is.
Öll farsímafélög loka 3G
Fjarskiptafyrirtækin taka öll þátt, í samvinnu við Fjarskiptastofu og Neyðarlínuna, í því að slökkva á 3G-kerfunum á Íslandi. Sú vinna er í takt við þróunina á heimsvísu þar sem 3G-kerfin eru komin til ára sinna og standast ekki lengur kröfur nútímans um hraða og öryggi.
Þau símtæki sem reiða sig á 3G-farsímakerfið munu missa samband og ekki geta framkvæmt símtöl þegar slökkt verður á síðustu sendunum.
Allar frekari upplýsingar má nálgast hér á vef Símans.
