Síminn leggur grunn að sterkari framtíð

01. júní 2026

Frá og með 1. júlí 2026 færist fjarskipta- og fjölmiðlarekstur Símans hf. yfir til Símans Reksturs ehf.

imageHero

Frá og með 1. júlí 2026 færist fjarskipta- og fjölmiðlarekstur Símans hf. yfir til Símans Reksturs ehf., kt. 680126-2240. Þetta er hluti af innri breytingum á skipulagi samstæðunnar og er gert til að skapa aukið svigrúm til vaxtar og þróunar til framtíðar.


Breytingin hefur engin áhrif á þjónustu við viðskiptavini. Verð, kjör og virkni þjónustunnar haldast óbreytt og áfram verður starfað undir heitinu Síminn.


Algengar spurningar

  • Hvaða áhrif hefur þetta á fjarskiptaþjónustu mína?
    Engin. Þjónustan þín heldur áfram með óbreyttum hætti. Breytingin hefur ekki áhrif á verð, kjör eða virkni.
  • Þarf ég að gera eitthvað?
    Í flestum tilvikum þarf ekkert að gera. Reikningar munu koma frá nýrri kennitölu með gjalddaga í ágúst. Þeir sem hafa virkjað sjálfvirkar greiðslur í heimabanka gætu þurft að uppfæra stillinguna eftir því hvernig greiðslum þeirra er háttað.
  • Hvað verður um inneignarnóturnar og ábyrgðarskirteini mín hjá Símanum?
    Inneignarnótur og ábyrgðarskírteini halda áfram að gilda með óbreyttum hætti. Þær færast yfir til Símans Reksturs ehf. og verða nýttar í samræmi við gildandi ferli.
  • Hefur breytingin áhrif á vinnslu persónuupplýsinga?
    Síminn Rekstur ehf. tekur við hlutverki Símans hf. sem ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við þjónustuna. Breytingin hefur að öðru leyti ekki áhrif á réttindi viðskiptavina eða annað í Persónuverndarstefnu Símans.


Vakni spurningar er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur í gegnum Netspjallið á siminn.is.