Síminn og Bang & Olufsen í samstarfi um nýjan myndlykil
03. september 2026
Síminn hefur hafið sölu á nýrri kynslóð myndlykils sem þróaður var í samstarfi við Bang & Olufsen.

Síminn hefur hafið sölu á nýrri kynslóð myndlykils sem þróaður var í samstarfi við Bang & Olufsen. Í tækinu er innbyggður hágæða hátalari og upplifun með Dolby Audio sem gefur hljóðinu meiri dýpt.
„Með nýja Premium-myndlyklinum sameinum við nýjustu tækni og fyrsta flokks hljóð. Við það bætist svo aðgangur að framúrskarandi sjónvarpsefni í einni heildstæðri lausn,” segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum. „Við erum að ráðast í metnaðarfulla fjárfestingu til að tryggja að upplifun sjónvarpsáhorfenda verði í algjörum sérflokki.“
Myndlykillinn færist þannig úr því hlutverki að vera eingöngu tenging við sjónvarpsveitur yfir í að stórbæta heildarupplifun notenda í hljóði og mynd.
„Við erum spennt að færa hljóðheim Bang & Olufsen inn á íslensk heimili í samstarfi við Símann. Með þessari lausn fá viðskiptavinir hljóð sem nýtur sín jafnt við sjónvarpsáhorf og tónlistarhlustun,“ segir Duncan McCue, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Bang & Olufsen.
Hágæða hátalari frá Bang & Olufsen er innbyggður í myndlykilinn sjálfan en auk þess er hægt að fá tvo bakhátalara með. Með því breytist stofan í vandað heimabíó. Dolby Audio er tæknilausn sem hannað er til að þjappa, flytja og endurspila hljóð með sem mestum gæðum, hvort sem horft er á kvikmyndir, sjónvarpsþætti eða íþróttaviðburði.
Um 50 þúsund myndlyklar eru nú í notkun á um 45 þúsund íslenskum heimilum. „Áhorfendur hafa kosið þann stöðugleika og þægindi sem myndlyklar veita en nú tökum við það skrefinu lengra,“ segir Birkir.

Leiðandi í íslenskri framleiðslu
Sjónvarp Símans Premium sameinar vandað íslenskt sjónvarpsefni og alþjóðlegt úrval á borð við HBO Max og Hayu. Netflix og YouTube eru einnig aðgengileg á nýja myndlyklinum sem tryggir greiðan aðgang að allri sjónvarpsafþreyingu í einni og sömu lausninni.
Sjónvarp Símans er leiðandi í framleiðslu á leiknu íslensku sjónvarpsefni og framleiðir að jafnaði sex til sjö þáttaraðir á ári. Á þessu ári frumsýnir Sjónvarp Símans meðal annars Hildi, Hæst, Röskun, Elmu, Í versta falli, Sönn sakamál og Boltamömmur. Til marks um gæði efnisins hlutu þættir sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans 23 tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár sem er mesti fjöldi tilnefninga meðal innlendra sjónvarpsveitna.
Nánari upplýsingar og verðskrá:
- Premium myndlykill: 2.000 kr. á mánuði (eldri kynslóð myndlykla kostar áfram 1.500 kr. á mánuði).
- Bakhátalarar (Bang & Olufsen): 1.000 kr. aukalega á mánuði (leigðir tveir saman í setti).
- Sjónvarp Símans Premium: HBO Max, Hayu og BritTV fylgja með áskriftinni.
