Svikapóstar í aukningu – viðskiptavinir hvattir til að sýna aðgát

17. mars 2026

Undanfarið hafa viðskiptavinir Símans fengið fjölda svikapósta og falskra tölvupósta sem hafa sloppið í gegnum póstsíur.

imageHero

Undanfarið hafa viðskiptavinir Símans fengið fjölda svikapósta og falskra tölvupósta sem hafa sloppið í gegnum póstsíur. Í tölvupóstunum eru viðskiptavinir hvattir til að smella á óþekkta hlekki og hnappa.

Dæmi um tölvupósta sem eru sendir á viðskiptavini eru: „Viðvörun: Ódulkóðuð nettenging - Smelltu hér til að virkja örugga dulkóðun.“ Þegar smellt er á hnappinn er notandinn leiddur á svikasíðu. Viðskiptavinum Símans er ráðlagt að smella ekki á slíka hlekki eða hnappa í tölvupóstinum sem kunna að innihalda óværu.

Svikapóstarnir eru sendir á einstaklinga með Símnet netföng. Síminn vinnur að því í samstarfi við CERT-IS að loka léninu. Einnig er unnið að því að loka á móttöku þessara tölvupósta með rekstraraðila.

Síminn bendir á að:

  • Smella ekki á hlekki í grunsamlegum tölvupóstum
  • Athuga alltaf sendanda vandlega
  • Gefa aldrei upp lykilorð eða persónuupplýsingar í gegnum tölvupóst



Ef þú ert í vafa, mælum við með að eyða póstinum eða hafa samband við þjónustuver Símans. Hægt er að opna netspjall á www.siminn.is, senda okkur tölvupóst, hringja í 550 6000 eða heimsækja verslanir Símans.