
Hafðu það næs í sumar!
Sumarið er hjá Símanum. Við viljum að þú njótir þín sem allra best í sumar. Hér er allt sem þú þarft og meira til fyrir sæluríka sumardaga hvort sem þú ert á ferðinni, í bústaðnum, heima fyrir eða erlendis.

Færðu leikinn heim
Upplifðu leikinn í sumar í litskörpu og glæsilegu Samsung QLED sjónvarpi. Veglegur kaupauki fylgir öllum sjónvörpum hjá Símanum í sumar. Þú getur valið um Samsung Galaxy 5G spjaldtölvu eða 4 mánuði af Sjónvarpi Símans Premium.
Fylgstu með leikjunum í sumar í Sjónvarpi Símans Premium og taktu upplifunina á næsta stig með Premium myndlykli.
Samsung QLED sjónvörp

Á leiðinni út í heim?
Hvort sem þú ert á leið til Evrópu eða víðar í sumar, tryggjum við að þú sért alltaf í góðu sambandi. Hér getur þú kynnt þér leiðir til að halda kostnaði í skefjum með leiðum á borð við Reiki í Evrópu, Ferðapakkann og Voice Over WiFi.

Passaðu upp á símann í sumar
Sumarið er tími ferðalaga, útihátíða og ævintýra! Ef síminn týnist eða honum er stolið skaltu hafa samband við okkur sem fyrst. Við getum læst símanúmerinu þínu tímabundið til að koma í veg fyrir misnotkun og aðstoðað þig með næstu skref.


Besti ferðafélaginn
Í samstarfi við nærri 500 fjarskiptafyrirtæki í 193 löndum sjáum við til þess að þú sért í sambandi heimsálfa á milli.

Extra næs í bústaðnum
Tryggðu hámarkshraða í bústaðnum í sumar fyrir streymi, niðurhal og alla netnotkun. Með Bústaðarpakka Símans færðu 5G netbeini og loftnet fyrir betra samband. Hægt er að nota farsímaáskrift eða gagnakort sem samnýtir gagnamagnið úr áskriftinni þinni.

Uppfærðu stofuna heima
Glimrandi nýtt og fínt Samsung QLED sjónvarp ásamt Premium myndlykli mun tryggja þér topp næs upplifun í sumar. Ótrúlegt magn af íslensku gæðaefni, erlendar þáttaraðir, íþróttir og vandað barnaefni. Allt á einu stað í Sjónvarpi Símans Premium.

Premium myndlykill
Sjónvarp og streymi á einum stað. Premium myndlykill Símans kemur með innbyggðum hágæða hátalara frá Bang & Olufsen og Bluetooth fjarstýringu. Tryggðu þér hámarks gæði og þægindi meðan þú nýtur þess að horfa á Sjónvarp Símans.

Á ferðalagi innanlands
Verið vel tengd allan hringinn í sumar með 5G hraða. Með 5G, nýjustu kynslóð farsímakerfa opnast enn fleiri möguleikar, meiri hraði, lægri svartími og betri upplifun!

Snjallt fyrir krakka í sumar
Snjallúr sérhönnuð fyrir krakka gera þeim kleift að hringja, senda skilaboð og deila staðsetningu án síma. Þannig geta foreldrar fylgst með staðsetningu krakkans í leik úti í sumar.



