Njóttu þess að fara í pottinn eða út að hlaupa með heiminn á hendi þér!
Hringdu, taktu á móti símtölum, hlustaðu á tónlist og borgaðu fyrir kaupin - allt í úrinu.
Kauptu áskrift í Apple úrið þitt hjá Símanum og fáðu fyrstu 4 mánuðina ókeypis!
Svona skráir þú Apple Watch í Úræði
Til að virkja Úræði þarft þú Apple Watch úrið þitt og farsímann þinn. Mikilvægt er að farsímanúmerið þitt sé skráð í Áskrift, því Úræði virkar ekki í Frelsi eða Þrennu. Við mælum með að endurræsa símann áður en þú hefst handa við uppsetningu og passa upp á að þú sért með nýjustu uppfærslu í bæði úrinu og farsímanum.
Ef þú lendir í vandræðum mælum við með að kíkja á Spurt og svarað (hlekkur inn á aðstoðarsíðu)
Notendanafn og lykilorð er það sama og inn á Þjónustuvef Símans. Ef þú manst ekki lykilorðið þitt getur þú fengið það sent með því að slá inn kennitöluna þína hér.
Nú getur þú klárað skráninguna í Apple Watch appinu í símanum með því að fylgja skrefunum sem koma upp og byrjað að njóta!
Kauptu áskrift í Samsung úrið þitt hjá Símanum og fáðu fyrstu 4 mánuðina ókeypis!
Skráðu þig og við heyrum í þér eftir 1-5 virka daga til að virkja með þér áskriftina.